Rauðar rósir fölna 作词 : Pálmi Ragnar Ásgeirsson/Bríet Ísis Elfar 作曲 : Pálmi Ragnar Ásgeirsson/Bríet Ísis Elfar Keyrðum af stað Ungt ástfangið par Með draumaævintýraþrá Þú mér við hlið Allt sem ég þurfti Til að líta upp og gleyma mér í smá Ég fór aðra leið og nú Rata ég ekki aftur heim í hús En útsýnið dregur mig lengra út Ég veit ekki hvort ég sé týnd eða á réttum stað Af því að þú varst alltaf miðpunkturinn Sá sem ég horfði til í myrkri Þú varst ljósið sem ég þurfti Því þú varst allur alheimurinn En jafnvel rauðar rósir fölna Eins og bjartir dagar kvölda blómið mitt Hvað varð um drauminn Að sigra heiminn Við tvö á móti straumnum Hvarflaði af þér að berjast fyrir mér Var auðveldara að labba bara burt En kannski var ég sem fann Eitthvað að öllu og leitaði að Ástæðum til þess að brenna allt Ég vissi ekki hvort ég var týnd eða á réttum stað Af því að þú varst alltaf miðpunkturinn Sá sem ég horfði til í myrkri Þú varst ljósið sem ég þurfti Því þú varst allur alheimurinn En jafnvel rauðar rósir fölna Eins og bjartir dagar kvölda blómið mitt